UniFi Network
Wi-Fi sem nær um allt húsið, router, switch-ar og gestanet. Skipulagt, öruggt og hraðvirkt.
UniFi aðstoð fyrir heimili og einstaklinga
Ég aðstoða við að velja, setja upp og viðhalda UniFi búnaði frá Ubiquiti, svo Wi-Fi, myndavélar og aðgangsstýring virki einfaldlega.
Ráðgjöf, uppsetning og stuðningur fyrir allt UniFi vistkerfið.
Wi-Fi sem nær um allt húsið, router, switch-ar og gestanet. Skipulagt, öruggt og hraðvirkt.
Öryggismyndavélar, dyrabjöllur og upptökur sem eru geymdar heima hjá þér. Engin áskrift, aðgangur í símanum.
Rafrænar læsingar og aðgangsstýring með korti, síma eða kóða fyrir heimili og sameignir.
Uppfærslur, bilanaleit og breytingar eftir þörfum, á staðnum eða í fjaraðstoð.
Við förum yfir þarfir, húsnæði og hvað þú átt nú þegar.
Þú færð skýra tillögu að búnaði og verði, án skuldbindingar.
Ég set upp, stilli og kenni þér á kerfið og appið.
Ég er til staðar ef eitthvað kemur upp eða þú vilt bæta við.
MARUN er lítil, persónuleg þjónusta fyrir einstaklinga sem vilja gott net og öruggt heimili án þess að þurfa að verða sérfræðingar sjálfir. Ég hef mikla reynslu af UniFi búnaði og legg áherslu á vandaða uppsetningu, skýrar útskýringar og heiðarleg ráð.
MARUN er óháður þjónustuaðili og tengist Ubiquiti Inc. ekki. UniFi er vörumerki Ubiquiti Inc.
Sendu línu og við finnum tíma sem hentar.